Ferill 199. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1988–89. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 199 . mál.
Ed.
733. Frumvarp til laga
um breyting á lögum um hreppstjóra, nr. 32 26. apríl 1965.
(Eftir 2. umr. í Ed., 4. apríl.)
1. gr.
1. gr. laganna orðast svo:Hreppstjóri skal vera í hverju sveitarfélagi utan aðseturs sýslumanns, nema sýslumaður telji þess ekki þörf.
2. gr.
2. gr. laganna orðast svo:Þá er starf hreppstjóra losnar skal sýslumaður auglýsa það laust til umsóknar. Sýslumaður veitir stöðu hreppstjóra að fenginni umsögn sveitarstjórnar.
Hafi sýslumaður skrifstofu í sveitarfélagi utan aðseturs síns er honum heimilt án auglýsingar að skipa forstöðumann þeirrar skrifstofu jafnframt hreppstjóra í því sveitarfélagi. Er hreppstjórastarfið þá hluti af starfi forstöðumanns.
3. gr.
Í stað „sýslunefnd“ í 4. gr. komi: sveitarstjórn.4. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.